Ferill 691. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1612 — 691. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um meðferð sakamála, lögum um meðferð einkamála og lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. (miðlun og form gagna, fjarþinghöld, birting ákæra o.fl.).
(Eftir 2. umræðu, 30. apríl.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008.
1. gr.
Tilkynningu eða gagni sem á grundvelli laga þessara er afhent eða sent á milli þeirra sem aðkomu eiga að máli er heimilt að miðla á rafrænu eða stafrænu formi, enda leiki ekki vafi á uppruna þess eða frá hverjum það stafar. Dómari getur ákveðið að frumrit gagns verði lagt fram í dómi telji hann það nauðsynlegt, svo sem fyrir sönnunarfærslu málsins.
Þegar lög þessi eða venja áskilja áritun, undirritun, staðfestingu eða vottun telst slíkum áskilnaði fullnægt með rafrænni staðfestingu.
Gagn sem miðlað er á stafrænu eða rafrænu formi telst komið til viðtakanda þegar það er aðgengilegt þannig að unnt sé að kynna sér efni þess. Gagn þarf ekki jafnframt að afhenda á pappírsformi.
Gögn sem birt eru eftir fyrirmælum 156. gr. eða 156. gr. a skulu, þrátt fyrir þessa grein, birt á því formi og á þann hátt sem þar er lýst.
2. gr.
3. gr.
Dómari getur heimilað þátttöku í þinghaldi í gegnum fjarfundarbúnað, enda verði því háttað þannig að allir sem viðstaddir eru geti fylgst með því sem fram fer. Telst það fullnægjandi mæting af hálfu málsaðila.
Ákærða eða sakborningi verður þó ekki gert, gegn vilja sínum, að taka þátt í þinghaldi í gegnum fjarfundarbúnað nema ríkar ástæður séu fyrir hendi. Sá sem sættir sig ekki við ákvörðun dómara getur krafist úrskurðar þar um.
Dómstólasýslan setur leiðbeinandi reglur um fjarþinghöld, þar á meðal um skýrslugjöf fyrir dómi.
4. gr.
5. gr.
a. Á eftir orðinu „Við“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Hæstarétt.
b. 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Það sem skráð er í þingbók skal varðveita þannig að það sé öruggt og aðgengilegt.
c. Í stað orðsins „undirritar“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: staðfestir.
d. Í stað orðsins „undirrita“ í 6. málsl. 2. mgr. kemur: staðfesta.
6. gr.
Við Hæstarétt, Landsrétt og hvern héraðsdómstól skal haldin dómabók sem hefur að geyma dóma, svo og úrskurði eftir því sem við á, sem fela í sér niðurstöðu máls, staðfesta af dómara.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:
a. 2. og 3. málsl. 1. mgr. orðast svo: Þau skulu staðfest af dómstól um framlagningu. Sá sem leggur fram skjal skal afhenda það dómara og aðilum máls eintak þess, svo og brotaþola ef mætt er af hans hálfu í málinu.
b. Í stað orðanna „varðveita í skjalasafni hlutaðeigandi dómstóls“ í 2. mgr. kemur: hlutaðeigandi dómstóll varðveita.
c. Í stað orðsins „afrit“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: annað eintak.
8. gr.
a. Í stað orðanna „afrit af málskjölum“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: eintak málskjala.
b. Í stað orðanna „afrit af ákæru og greinargerð“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: eintak ákæru og greinargerðar.
c. Í stað orðanna „afrit af þeim hlutum“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: þá hluta.
d. Í stað orðanna „endurrit úr þingbók eða dómabók“ í 2. mgr. kemur: eintak þingbókar eða dómabókar.
e. Í stað orðsins „endurrit“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: eintök.
f. 2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Áður en þau eru afhent skal, ef sérstök ástæða er til, afmá úr þeim atriði sem eðlilegt er að fari leynt með tilliti til almanna- eða einkahagsmuna, þar á meðal ef það hefði í för með sér hættu á sakarspjöllum að þau kæmust til vitundar almennings.
g. Orðið „afrit“ í 1. málsl. 4. mgr. fellur brott.
h. Í stað orðanna „eftirgerð af hljóð- eða myndupptökum“ í 3. málsl. 4. mgr. kemur: hljóð- eða myndupptökur.
i. Í stað orðanna „afrita af hljóðupptökum“ í 4. málsl. 4. mgr. kemur: hljóðupptaka.
j. Í stað orðanna „afrit eða eftirgerð“ í 6. mgr. kemur: eintak.
k. Orðið „afrits“ í 1. málsl. 7. mgr. fellur brott.
9. gr.
a. Á eftir orðinu „Við“ í 1. mgr. kemur: Hæstarétt.
b. Í stað orðanna „Dómstólasýslan setur nánari reglur um eftirfarandi atriði fyrir“ í 2. mgr. kemur: Að höfðu samráði við hlutaðeigandi dómstig setur dómstólasýslan nánari reglur um eftirfarandi atriði fyrir Hæstarétt.
c. Orðin „þar á meðal rafræna færslu þeirra“ í a-lið 2. mgr. falla brott.
d. Í stað orðanna „endurritum af dómum og úr þingbók“ í f-lið 2. mgr. kemur: dómum og þingbókum.
e. Á undan orðunum „form og frágang“ í g-lið 2. mgr. kemur: rafræna staðfestingu, sem og afhendingarmáta.
10. gr.
a. Í stað orðsins „afrit“ í 1. málsl. kemur: eintak.
b. Í stað orðanna „afrit af einstökum skjölum“ í 3. málsl. kemur: eintak tiltekinna skjala.
11. gr.
a. Í stað orðsins „afrit“ í 1. málsl. kemur: eintak.
b. Í stað orðanna „afrit af skjölum“ í 2. málsl. kemur: eintak skjala.
c. Í stað orðanna „afrit af einstökum skjölum“ í 4. málsl. kemur: eintak tiltekinna skjala.
12. gr.
13. gr.
14. gr.
a. Í stað orðanna „hver tekur skýrsluna, hver gefur hana“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: lögreglunúmer þess sem tekur skýrsluna, hver gefur hana, lögreglunúmer og auðkennisnúmer starfsmanna lögreglu sem viðstaddir eru.
b. Á eftir orðunum „nöfn sín“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: lögreglunúmer eða auðkennisnúmer starfsmanns lögreglu.
15. gr.
16. gr.
17. gr.
18. gr.
19. gr.
20. gr.
21. gr.
Nú er vitni statt fjarri þingstað eða það hefði annars sérstakt óhagræði af því að koma fyrir dóm og getur þá dómari ákveðið að skýrsla verði tekin af því á dómþingi í gegnum fjarfundarbúnað með hljóði og mynd, enda leiki að mati dómara ekki vafi á auðkenni vitnis og tryggt þykir að það geti gefið skýrslu án utanaðkomandi þrýstings eða truflunar. Ef sérstaklega stendur á getur dómari þó ákveðið að skýrslutaka fari einungis fram með hljóði enda megi ekki ætla að úrslit máls geti ráðist af framburði vitnis og skýrslutöku verði hagað þannig að viðstaddir heyri orðaskipti við vitnið.
22. gr.
23. gr.
24. gr.
25. gr.
26. gr.
a. 5. málsl. orðast svo: Sakborningur staðfestir skýrsluna og fær afhent eintak hennar.
b. 8., 9. og 10. málsl. falla brott.
27. gr.
28. gr.
29. gr.
30. gr.
31. gr.
a. Í stað orðanna „afrit af henni“ í 3. málsl. 2. mgr. og 2. málsl. 5. mgr. kemur: eintak hennar.
b. Í stað orðsins „afriti“ tvívegis í 4. málsl. 2. mgr. kemur: eintaki.
c. 1. málsl. 5. mgr. orðast svo: Að birtingu lokinni afhendir ákærandi dómara ákæru ásamt birtingarvottorði eða annarri staðfestingu á birtingu.
32. gr.
Heimilt er að birta ákæru fyrir ákærða í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda og telst hún þá réttilega birt þegar ákærði hefur staðfest móttöku hennar.
Við birtingu ákæru í stafrænu pósthólfi skal þess gætt að gefa ákærða kost á að óska eftir verjanda, sbr. 4. mgr. 156. gr.
Um birtingu ákæra í stafrænu pósthólfi fer að öðru leyti eftir lögum um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
Ríkissaksóknari setur nánari fyrirmæli um birtingu gagna eftir þessari grein í stafrænu pósthólfi.
33. gr.
34. gr.
35. gr.
36. gr.
a. Í stað orðanna „Endurrit af dómi eða úrskurði“ í 2. mgr. kemur: Eintak dóms eða úrskurðar.
b. Í stað orðsins „endurrit“ í 1. og 2. málsl. 3. mgr. kemur: eintak.
c. Við 4. málsl. 3. mgr. bætist: eða 156. gr. a.
37. gr.
38. gr.
a. Á undan orðunum „hvort loka eigi“ í b-lið kemur: hvort ákærði eða sakborningur taki þátt í þinghaldi í gegnum fjarfundarbúnað.
b. Í stað orðanna „afrit af gögnum“ í c-lið kemur: gögn.
39. gr.
a. Í stað orðanna „endurritum úr þingbók“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: þingbók.
b. Í stað orðanna „á því formi eða í þeim fjölda eintaka sem Landsréttur ákveður“ í 4. málsl. 1. mgr. kemur: Landsrétti.
c. Í stað orðanna „afrit af greinargerðinni og nýjum gögnum“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: eintak greinargerðarinnar og nýrra gagna.
40. gr.
41. gr.
42. gr.
a. Í stað orðanna „endurrit, sem og hljóðupptökur af munnlegum framburði fyrir héraðsdómi og afrit þeirra málsskjala“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: dómur, úrskurðir og þingbók sem og hljóðupptökur og uppritun af munnlegum framburði fyrir héraðsdómi og þau málskjöl.
b. Orðin „í þeim fjölda eintaka sem hann telur þörf á“ í 3. málsl. 2. mgr. falla brott.
c. Í stað orðanna „Landsréttur setur“ í 3. mgr. kemur: Landsrétti er heimilt að setja.
43. gr.
44. gr.
a. Í stað orðanna „endurritum úr þingbók“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: þingbók.
b. 3. málsl. 1. mgr. orðast svo: Gögnin sendir Landsréttur til Hæstaréttar, ásamt athugasemdum ef Landsréttur svo kýs.
c. Í stað orðanna „afrit af greinargerðinni“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: eintak greinargerðarinnar.
45. gr.
46. gr.
47. gr.
48. gr.
a. Í stað orðanna „afrit þeirra málsskjala og endurrita“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: þau málskjöl, dómur, úrskurðir, þingbók og uppritanir.
b. Orðin „í þeim fjölda eintaka sem hann telur þörf á“ í 2. málsl. 2. mgr. falla brott.
c. Í stað orðanna „Hæstiréttur setur“ í 3. mgr. kemur: Hæstarétti er heimilt að setja.
49. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991.
50. gr.
1. Tilkynningu eða gagni sem á grundvelli laga þessara er afhent eða sent á milli þeirra sem aðkomu eiga að máli er heimilt að miðla á rafrænu eða stafrænu formi, enda leiki ekki vafi á uppruna þess eða frá hverjum það stafar. Dómari getur ákveðið að frumrit gagns verði lagt fram í dómi telji hann það nauðsynlegt, svo sem fyrir sönnunarfærslu málsins.
2. Þegar lög þessi eða venja áskilja áritun, undirritun, staðfestingu eða vottun telst slíkum áskilnaði fullnægt með rafrænni staðfestingu.
3. Gagn sem miðlað er á stafrænu eða rafrænu formi telst komið til viðtakanda þegar það er aðgengilegt þannig að unnt sé að kynna sér efni þess. Gagn þarf ekki jafnframt að afhenda á pappírsformi.
4. Gögn sem birta skal eftir fyrirmælum XIII. kafla skulu, þrátt fyrir þessa grein, birt á því formi og á þann hátt sem þar er lýst.
51. gr.
52. gr.
4. Dómari getur heimilað þátttöku í þinghaldi í gegnum fjarfundarbúnað, enda verði því háttað þannig að allir sem viðstaddir eru geti fylgst með því sem fram fer. Telst það fullnægjandi mæting af hálfu málsaðila.
5. Dómstólasýslan setur leiðbeinandi reglur um fjarþinghöld, þar á meðal um skýrslugjöf fyrir dómi.
53. gr.
54. gr.
a. Á eftir orðinu „Við“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Hæstarétt.
b. 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Það sem skráð er í þingbók skal varðveita þannig að það sé öruggt og aðgengilegt.
c. Í stað orðsins „undirritar“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: staðfestir.
d. Í stað orðsins „undirrita“ í 5. málsl. 2. mgr. kemur: staðfesta.
55. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
1. 1. Við Hæstarétt, Landsrétt og hvern héraðsdómstól skal haldin dómabók sem hefur að geyma dóma, svo og úrskurði eftir því sem við á, sem fela í sér niðurstöðu máls, staðfesta af dómara.
b. Á eftir orðunum „skrá við“ í 2. mgr. kemur: Hæstarétt.
56. gr.
a. 2. og 3. málsl. 1. mgr. orðast svo: Þau skulu staðfest af dómstól um framlagningu. Sá sem leggur fram skjal skal afhenda dómara og aðilum máls eintak þess.
b. Í stað orðins „myndrit“ tvívegis í 2. málsl. og einu sinni í 3. málsl. 2. mgr. kemur: annað eintak.
57. gr.
a. Í stað orðanna „eftirrit af málsskjölum og úr þingbók eða dómabók“ í 1. mgr. kemur: eintak málsskjala og eintök úr þingbók eða dómabók.
b. Í stað orðanna „endurrit“ og „eftirrit“ í 2. mgr. kemur: eintök.
c. Orðið „afrit“ í 1. málsl. 3. mgr. fellur brott.
d. Í stað orðanna „afrita af hljóðupptökum“ í 3. málsl. 3. mgr. kemur: hljóðupptaka.
e. Í stað orðsins „eftirrit“ í 5. mgr. kemur: afhendingu.
f. Orðið „eftirrits“ í 1. málsl. 6. mgr. fellur brott.
58. gr.
a. Í stað orðanna „Dómstólasýslan setur nánari reglur um eftirfarandi atriði fyrir“ kemur: Að höfðu samráði við hlutaðeigandi dómstig setur dómstólasýslan nánari reglur um eftirfarandi atriði fyrir Hæstarétt.
b. Orðin „þar á meðal rafræna færslu þeirra“ í b-lið falla brott.
c. Í stað orðanna „endurritum af dómum og úr þingbók“ í f-lið kemur: dómum og þingbókum.
d. Á undan orðunum „form og frágang“ í g-lið kemur: rafræna staðfestingu, sem og afhendingarmáta.
59. gr.
4. Ef vitni er statt fjarri þingstað, það hefði sérstakt óhagræði af því að koma fyrir dóm eða það er til þess fallið að greiða fyrir meðferð málsins að öðru leyti, getur dómari ákveðið að skýrsla verði tekin af því á dómþingi gegnum síma eða annað fjarskiptatæki, eftir atvikum í hljóði og mynd, enda leiki að mati dómara ekki vafi á auðkenni vitnis og tryggt þykir að það geti gefið skýrslu án utanaðkomandi þrýstings eða truflunar. Skýrslutöku í gegnum fjarfundarbúnað skal hagað þannig að allir sem eru staddir á dómþingi heyri orðaskipti við vitnið.
60. gr.
61. gr.
62. gr.
Í stað orðanna „frumritum eða myndritum nauðsynlegra gagna og endurritum úr“ í 1. mgr. 74. gr. laganna kemur: nauðsynlegum gögnum og.
63. gr.
64. gr.
Í stað orðsins „undirrita“ í 3. mgr. 81. gr. laganna kemur: staðfesta.
65. gr.
a. Í stað orðsins „vottar“ í a-lið 1. mgr. kemur: staðfestir.
b. Í stað orðanna „samrit hennar er sent í ábyrgðarbréfi sem er borið út og póstmaður vottar“ í b-lið 1. mgr. kemur: eintak hennar er sent í ábyrgðarbréfi sem er borið út og póstmaður staðfestir.
c. Í stað orðsins „samrit“ í a-lið 3. mgr. kemur: eintak.
66. gr.
a. Í stað orðsins „samriti“ í 1. og 2. málsl. kemur: eintaki.
b. Í stað orðsins „samrit“ tvívegis í 3. málsl. kemur: eintakið.
67. gr.
a. Í stað orðsins „samrit“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: eintak.
b. Í stað orðsins „samriti“ tvívegis í 3. mgr. kemur: eintaki.
68. gr.
69. gr.
Í stað orðsins „undirrituð“ í 2. málsl. 109. gr. laganna kemur: staðfest.
70. gr.
71. gr.
72. gr.
73. gr.
74. gr.
Í stað orðsins „eftirriti“ í 3. málsl. 2. mgr. 145. gr. laganna kemur: eintaki.
75. gr.
a. Orðin „og í þeim fjölda eintaka sem Landsréttur ákveður“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
b. Orðið „eitt“ í 3. málsl. 3. mgr. fellur brott.
c. Orðin „og skulu þau vera í því horfi sem Landsréttur mælir fyrir um“ í 4. málsl. 3. mgr. falla brott.
d. 6. mgr. orðast svo:
6. Landsrétti er heimilt að setja reglur um frágang málsgagna aðila í kærumálum.
76. gr.
a. Orðið „eitt“ í 4. málsl. fellur brott.
b. 5. málsl. fellur brott.
77. gr.
78. gr.
a. Í stað orðsins „endurriti“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: eintaki.
b. Í stað orðsins „bréflega“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: skriflega.
79. gr.
a. Í stað orðanna „endurriti af dóminum“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: eintaki dómsins.
b. 2. mgr. orðast svo:
2. Landsréttur skal halda eftir eintaki áfrýjunarstefnu skv. 1. mgr.
80. gr.
a. Í stað orðanna „í þeim fjölda eintaka sem Landsréttur ákveður en til þeirra teljast endurrit, þar á meðal“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: en til þeirra teljast dómur, úrskurðir og þingbók, uppritun.
b. 4. mgr. orðast svo:
4. Landsrétti er heimilt að setja nánari reglur um frágang málsgagna aðila og dómsgerða.
81. gr.
Í stað orðsins „bréfleg“ í 1. málsl. 1. mgr. 158. gr. laganna kemur: skrifleg.
82. gr.
a. Orðin „í þeim fjölda eintaka sem Landsréttur ákveður“ í 2. mgr. falla brott.
b. 3. mgr. fellur brott.
83. gr.
a. Orðin „í frumriti og ljósrit eða eftirrit þeirra“ í 4. málsl. falla brott.
b. Í stað orðsins „eftirrit“ í 5. málsl. kemur: eintak.
84. gr.
85. gr.
a. Orðin „og í þeim fjölda eintaka sem Hæstiréttur ákveður“ í 1. málsl. 2. mgr. falla brott.
b. Orðið „eitt“ í 4. málsl. 2. mgr. fellur brott.
c. Orðin „og skulu þau vera í því horfi sem Hæstiréttur mælir fyrir um“ í 5. málsl. 2. mgr. falla brott.
d. 4. mgr. orðast svo:
4. Hæstarétti er heimilt að setja nánari reglur um frágang málsgagna aðila í kærumálum.
86. gr.
a. Orðið „eitt“ í 4. málsl. fellur brott.
b. 5. málsl. fellur brott.
87. gr.
88. gr.
a. Í stað orðsins „endurriti“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: eintaki.
b. Í stað orðsins „bréflega“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: skriflega.
89. gr.
2. Hæstiréttur skal halda eftir eintaki áfrýjunarstefnu skv. 1. mgr.
90. gr.
a. 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Einnig skal hann þá skila málsgögnum en til þeirra teljast málsskjöl, dómur, úrskurðir, þingbók og uppritanir sem áfrýjandi hyggst byggja mál sitt á fyrir Hæstarétti og liggja þegar fyrir.
b. 4. mgr. orðast svo:
4. Hæstarétti er heimilt að setja nánari reglur um frágang málsgagna aðila og dómsgerða.
91. gr.
92. gr.
a. Orðin „í þeim fjölda eintaka sem Hæstiréttur ákveður“ í 1. málsl. 2. mgr. falla brott.
b. Í stað orðanna „þau málsskjöl og endurrit“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: málsskjöl, dómur, úrskurðir, þingbók og uppritanir.
c. 3. mgr. fellur brott.
93. gr.
a. Orðin „í frumriti og ljósrit eða eftirrit þeirra“ í 4. málsl. falla brott.
b. Í stað orðsins „eftirrit“ í 7. málsl. kemur: eintak.
III. KAFLI
Breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991.
94. gr.
95. gr.